16.2.2008 | 22:30
Manchester United menn fóru illa með Arsenal 4-0
1-0 Wayne Rooney 16
2-0 Darren Fletcher 20
3-0 Luis Nani 38
4-0 Darren Fletcher 74
Manchester United menn fóru illa með Arsenal í 16 liða úrslitum enska FA bikarsins í dag og unnu stórsigur 4-0. United menn voru sterkari frá fyrstu mínútu og strax á 16. mínútu kom Wayne Rooney þeim yfir með laglegu skallamarki. Þremur mínútum síðar voru Manchester United menn komnir í 2-0 þegar að Darren Fletcher vann William Gallas í skallaeinvígi og skoraði.
Nani kom Manchester United í 3-0 á 38. mínútu eftir stungusendingu frá Michael Carrick og leikurinn því nánast búinn í hálfleik. Á 50. mínútu urðu Arsenal menn einum manni færri þegar að Eboue var vikið af leikvelli fyrir að sparka í Evra. Manchester United menn gerðu svo endalega út um leikinn á 74. mínútu þegar að Darren Fletcher skoraði sitt annað mark.
Úrslitin 4-0 sannfærandi sigur Manchester United, en United menn gátu leyft sér að hvíla Ryan Giggs og Cristiano Ronaldo í kvöld.
16.2.2008 | 22:19
haha liverpool úr leik í bikarnum! það tapaði á móti Barnsley 1-2
Liverpool er úr leik í ensku bikarkeppninni eftir tap á heimavelli gegn 1. deildarliði Barnsley. Gestirnir unnu frækinn sigur, 2:1, og skoraði fyrirliðinn Brian Howard sigurmarkið á lokamínútu leiksins. Chelsea lenti í vandræðum með 2. deildarlið Huddersfield en tókst að lokum að innbyrða 3:1 sigur.
Liverpool - Barnsley 1:2 leik lokið
20 mínútu eru liðnar af leiknum á Anfield og eiga liðsmenn Barnsley í fullu tré við úrvalsdeildarliðið.
Charles Itandje markvörður Liverpool kemur sínum mönnum til bjargar á 27. mínútu en honum tókst að verja frá Daniel Nardiello sem var kominn í gott færi. Besta færið í leiknum.
Xabi Alonso á góða marktilraun en Luke Steel markvörður Barnsley gerir vel með því að slá boltann í horn.
Búið er að flauta til leikhlés á Anfield þar sem Liverpool er 1:0 yfir. Rétt í þann mund sem Martin Atkinson flautaði til hálfleiks varði Luke Steel glæsilega góðan skalla frá Peter Crouch.
32. Hollendingurinn Dirk Kuyt kemur Liverpool yfir eftir góðan undirbúning frá landa sínum, Ryan Babel. Lengi hefur verið beðið eftir marki frá Kuyt en þetta er fyrsta mark hans í 14 leikjum. Babel lék á tvo varnarmenn Barnsley, komst upp að endamörkum þar sem hann sendi boltann á Kuyt sem skoraði af öryggi.
56. Stephen Foster jafnar fyrir Barnsley með skallamarki eftir frábæra fyrirgjöf frá Martin Devaney.
Liverpool var afar nálægt því að komast yfir rétt í þann mund sem fagnaðarlátum Barnsley var að ljúka. Benayoun og Crouch komust í upplögð færi í sömu sókninni en varnarmenn Barnsley björguðu meistaralega í bæði skiptin.
Luke Steel markvörður Barnsley heldur sínum mönnum á floti en í tvígang á skömmum tíma ver hann meistaralega, fyrst skalla frá Lucasi og rétt á eftir þrumuskot frá Benayoun.
Rafael Benítez ákveður að skella fyrirliðanum Steven Gerrard inná á 70. mínútu leiksins.
Liverpool pressar stíft að marki Barnsley og Harry Kewell er hársbreidd frá því að skora en þrumuskot hans fór í slá og yfir.
90. Fyrirliðinn Brian Howard tryggir Barnsley sigurinn með hnitmiðuðu skoti því andartaki síðar er flautað til leiksloka. Liverpool er úr leik og spurning hvort Rafael Benítez fái ekki að taka pokann.
Liverpool: Charles Itandje, Steve Finnan, Sami Hyypia, Jamie Carragher, John Arne Riise, Xabi Alonso, Yossi Benayoun, Lucas Leiva, Peter Crouch, Dirk Kuyt, Ryan Babel. Varamenn: Harry Kewell, Steven Gerrard, Jermaine Pennant, David Martin, Alvaro Arbeloa.
Barnsley: Luke Steel, Stephen Foster, Robert Kozluk, Bobby Hassell, Martin Devaney, Brian Howard, Anderseon De Silva, Diego Leon, Daniel Nardiello, Istan Ferenczi, Dennis Souza.
Chelsea - Huddersfield 3:1 leik lokið
18. Fran pard er búinn að koma bikarmeisturunum yfir á Stamford Bridge. Þetta er tímamótamark hjá Lampard en markið er hans 100. fyrir félagið.
John Terry fyrirliði Chelsea kemur sínum mönnum til bjargar með því að bjarga kollspyrnu frá Nathan Clarke af marklínu á 38. mínútu leiksins.
45. Annarrar deildarliðið jafnar metin á Stamford Bridge. Michael Collins var þar af verki þegar hann skoraði af öryggi framhjá Carlo Cudicini og fáum andartökum seinna var flautað til hálfleiks. Þessi sömu lið áttust við í bikarnum fyrir tveimur árum þar sem Chelsea hafði betur, 2:1, og skoraði Eiður Smári Guðjohnsen sigurmarkið seint í síðari hálfleik.
60. Fran pard skorar sitt annað mark í leiknum og það 101 fyrir félagið og Chelsea er komið í 2:1 gegn 2. deildarliði Huddersfield.
71. Chelsea er að gera út um leikinn en Hollendingurinn Salomon Kalou er búinn að koma Lundúnaliðinu í 3:1.
Chelsea: Carlo Cudicini, Paulo Ferreira, John Tewrry, Tal Ben-Haim, Wayne Bridge, Fran pard, Steve Sidwell, John Obi Mikel, Claudio Pizarro, Salomon Kalou, Scott Sinclair. Varamenn: Michael Essien, Nicolas Anelka, Andriy Shevchenko, Ricardo Carvahlo, Hilario.
Huddersfield: Matthew Glennon, Robrt Page, Frank Sinclair, Nathan Clarke, Chris Brandon, Robbie Williams, Andy Holdsworth, Michael Collins, James Berrett, Phil Jevons.
Cardiff - Wolves 2:0 leik lokið
2. Peter Whittingham, fyrrum leikmaður Aston Villa, skorar eftir sendingu frá hinum þrautreynda Jimmy Floyd Hasselbaink.
10. Jimmy Floyd Hasselbaink er í stuði en Hollendingurinn er búinn að koma Cardiff í 2:0. Ekki fallegasta markið sem Hasselbaink hefur skorað á ferlinum en markið telur og það skiptir öllu.
Coventry - WBA 0:5 leik lokið
14. Chris Brunt skorar með skalla fyrir WBA.
Heimamenn eru orðnir manni færri en Michael Doyle var sendur í bað í upphafi síðari hálfleiks.
66. Gestirnir eru nánast búnir að gera út um leikinn en Roman Bednar var að koma WBA í 2:0 gegn tíu leikmönnum Coventry.
75. Roman Bednar skorar þriðja mark WBA og sitt annað í leiknum. WBA verður í hattinum þegar dregið verður til 8-liða úrslitanna á mánudag.
80. Liðsmenn WBA eru í markastuði en Ishmael Miller var að koma sínum mönnum í 4:0.
82. Ungverjinn Zoltan Gera skorar fimmta mark gestanna og stuðningsmenn Coventry eru flestir á leið út af vellinum.
16.2.2008 | 22:16
Alex Ferguson: Stórkostleg frammistaða
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United var í skýjunum eftir sigur sinna manna gegn aðalkeppinautunum í Arsenal í viðureign liðanna í bikarnum á Old Trafford í kvöld.
Þetta var stórkostleg frammistaða hjá liðinu. Leikmenn mínir voru frábærir. Þeir sýndu frábær tilþrif í alla staði og eftir mikil vonbrigði eftir leikinn við Manchester City svöruðu þeir fyrir sig á réttan hátt. Ég fann það í vikunni að þeir ætluðu að selja sig dýrt og þeir gerðu það svo sannarlega, sagði Ferguson við Manchester United sjónvarpsstöðina eftir 4:0 sigur liðsins á Arsenal.
16.2.2008 | 22:15
Man Utd tók Arsenal í kennslustund
Manchester United tók Arsenal í kennslustund á Old Trafford í kvöld þegar liðin áttust við í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Englandsmeistararnir unnu stórsigur, 4:0, eftir að staðan var, 3:0 í hálfleik. Darren Fletcher skoraði tvö marka United og þeir Wayne Rooney og Nani gerðu sitt markið hver.
Textalýsing af leiknum er hér að neðan
Hvorki Cristiano Ronaldo né Ryan Giggs eru í leikmannahópi Manchester United, eru hvíldir, og þá vekur athygli að Carlos Tevez og Paul Scholes hefja leik á bekknum. Hjá Arsenal eru Emmanuel Adebayor og Flamini á bekknum en bakverðirnir Gael Clichy og Bacari Sagna eru ekki með.
9. Jens Lehmann markvörður Arsenal gerir vel að verja þrumufleyg frá Brasilíumanninum Anderson utan teigs en þetta er fyrsta marktilraunin í leiknum.
16. Wayne Rooney kemur Manchester United yfir með skallamarki af stuttu færi eftir hornspyrnu og skallasendingu frá Anderson. Heimamenn hafa verið töluvert sterkari fyrsta stundarfjórðunginn og liðsmenn Arsenal hafa átt í vök að verjast.
20. Englandsmeistararnir eru í miku stuði og Skotinn Darren Fletcher er búinn að koma liðinu í 2:0 með skallamarki eftir góðan undirbúning frá Nani.
Heimamenn eru líklegir að bæta við marki. Wayne Rooney hefur í tvígang komist í góð færi en brást bogalistin í bæði skiptin. Darren Fletcher hefur leikið stórvel fyrir United-liðið og hefur svo sannarlega náð að fylla skarð Cristiano Ronaldos, eitthvað sem fáir áttu von á að hann myndi gera.
38. Manchester United er að taka Arsenal í karphúsið. Portúgalinn Nani var að koma United í 3:0. Hann fékk glæsilega sendingu frá Michael Carrick innfyrir slaka vörn Arsenal. Nani tók boltann vel niður og skoraði með föstu vinstrifótarskoti.
Alan Wiley flautar til hálfleiks. Manchester United hefur boðið stuðningsmönnum sínum upp á síðbúna flugeldasýningu. Staðan er 3:0 þar sem Englandsmeistararnir hafa farið á kostum gegn toppliði ensku úrvalsdeildarinnar.
50. Rautt spjald. Það syrtir enn í álinn hjá Arsenal. Emmanuel Eboe fær að líta rauða spjaldið fyrir fólskulegt brot á Patrice Evra.
62. Wayne Rooney kemst einn gegn Jens Lehmann en Þjóðverjinn sér við Rooney og ver með góðu úthlaupi.
70. Arsene Wenger gerir þrefalda skiptinu. Adebayor, Senderos og Flamini koma inná fyrir Fabregas, Eduardo da Silva og Hleb.
71. Sir Alex notar tækifærið og gerir tvær breytingar á liði sínu. Wayne Rooney og Anderson eru kallaðir af velli og í þeirra stað koma Louis Saha og Paul Scholes.
74. Darren Fletcher er á góðri leið með að tryggja sér útnefningu á manni leiksins en Skotinn var að koma United í 4:0 með sínu öðru skallamarki eftir frábæran undirbúning frá Nani.
88. Louis Saha fær upplagt færi til að skora fimmta markið en Lehmann ver skot Frakkans af stuttu færi.
Man Utd: Edwin van der Sar, Wes Brown, Rio Ferdinand, Nemanja Vidic, Patrice Evra, Darren Fletcher, Michael Carrick, Anderson, Ji-Sung Park, Wayne Rooney, Luis Nani. Varamenn: Tomasz Kuszczak, Louis Saha, Paul Scholes, John O'Shea, Carlos Tevez.
Arsenal: Jens Lehmann, Justin Hoyte, William Gallas, Kolo Tourem Arman Traore, Emmanuel Eboe, Cesc Fabregas, Gilberto Silvam Alexandr Hleb, Eduardo Da Silva, Nicklas Bendtner. Varamenn: Lukasz Fabianski, Philipe Senderos, Mathieu Flamini, Gael Clichy, Emmanuel Adeybayor.
* Wayne Rooney skorar fyrsta mark Manchester United framhjá Jens Lehmann.
* Wayne Rooney fagnar marki sínu. :)
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2008 | 10:45
Hættur við að hætta! og ég gleymdi lykilorðinu á andriutd.blogcentral.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2008 | 13:39
hættur en er ennþá með andriutd.blogcentral.is/
1.2.2008 | 13:32
yeeeeeeeeees ronaldo!!!!!!!!!! og liverpool tapaði á móti west ham!



Enski boltinn | Breytt 7.2.2008 kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2008 | 19:59
nafn heimili staður sími afmæli
Færsluflokkar
Tónlist
rap and hip-hop
sssssssssssssss cool
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar